Forsíða IVR

Iðnaðarráðherra á ársfundi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins: 4.5 milljarða áhættusjóður og brú yfir „nýsköpunargjána“

28.5.2008

Í upphafi ársfundar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík í morgun, tilkynnti Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, að náðst hefði samkomulag um stofnun Frumtaks, samlagssjóðs stóru bankanna þriggja, stærstu lífeyrissjóða landsins og Nýsköpunarsjóðs. Frumtak mun hafa a.m.k. 4,6 milljarða króna á næstu árum til fjárfestinga í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Iðnaðarráðherra greindi einnig frá því að í morgun hefði verið undirritað samkomulag milli Nýsköpunarsjóðs og Tækniþróunarsjóðs um brú milli þessara sjóða yfir “nýsköpunargjána” svokölluðu í því skyni að stuðla betur að fyrstu skrefum í markaðsþróun fullþróaðra hugmynda:

Við þetta tækifæri sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra m.a:

„Þeir aðilar sem komið hafa að stofnun Frumtaks eiga heiður skilið. Einmitt nú þegar á móti blæs í efnahagslífi er höfuðnauðsyn að leggjast á eitt um að bæta vaxtarskilyrði nýsköpunar- og

sprotafyrirtækja. Stjórnvöld hafa lagt fram fé til þess að efla Nýsköpunarsjóð, Rannsóknarsjóð og Tækniþróunarsjóð og Nýsköpunarmiðsöð Íslands hefur byrjað sitt fyrsta starfsár af miklum þrótti. Bankar, lífeyrissjóðir og einkaaðilar taka nú á með Nýsköpunarsjóði til þess að auka framboð á áhættufé til nýsköpunar og það er vel.“

Sérstakt 1,5 milljarða króna framlag til Nýsköpunarsjóðs af tekjum ríkissjóðs vegna sölu Símans er stofninn í Frumtaki. Stóru bankarnir , Glitnir, Kaupþing banki og Landsbanki leggja fram 1,5 milljarð króna og sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins leggja fram 1,6 milljarð króna. Sú tala gæti hækkað þar sem áskrift er ekki lokið.

Í hinum vestræna heimi er mikil áhersla lögð á að örva nýsköpun með öllum tiltækum ráðum til þess að auka samkeppnishæfni og velferð þjóða. Þar er í auknum mæli horft á mikilvægi þess að auka framboð á áhættufé.

Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtaki er ætlað að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir. Frumtaki er heimilt að fjárfesta erlendis að því marki sem nauðsynlegt er vegna útrásar eða markaðssóknar íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði, ekki síst þegar möguleiki er á sameiningu eða samruna við fyrirtæki í eigu Frumtaks.

 

Á ársfundinum kom fram að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins telur að með starfi sínu að því að efla aðra fjárfestingarsjóði muni hann auðvelda vænlegum fyrirtækjum að sækja sér fé til vaxtar um leið og hann skapar sjálfum sér svigrúm til þess að sinna kjarnahlutverki sínu enn betur. Áður hefur Nýsköpunarsjóður ákveðið að fjárfesta fyrir 500 milljónir króna í tveimur samlagssjóðum, Brú ll og AuðiCapital. Heildafjárfesting Nýsköpunarsjóðs í samlagssjóðum er því áætluð 2 milljarðar króna. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra á ársfundi Nýsköpunarsjóðs

 

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ræddi tvöföldun á framlagi til Tækniþróunarsjóðs, stofnun Frumtaks til fjárfestinga í sprotafyrritækjum, hraðbraut í frumkvöðlafræðum á háskólastigi, brú yfir „nýsköpunargjána“ og samstarstarf við erlenda háskóla á sviði orkumála á ársfundi Nýsköpunarsjóðs í morgun.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica