Forsíða IVR

  • Ráðherra með Birgi Þorgilssyni og Ólöfu Ýrr Atladóttur
    Össur Skarphéðisnson ráðherra ferðamála á Vestnorrænu ferðakaupstefnunni með Ólöfu Ýri Atladóttur ferðamálastjóra og Birgi Þorgilsson fyrrv. formann ferðamálaráðs.

Markaðsátak í ferðamálum í haust og vetur

16.9.2008

Iðnaðarráðuneyti fréttatilkynning nr 19/2008
Allt að 100 milljónum króna verður varið í sérstakt átak á næstu mánuðum til að markaðssetja Ísland erlendis sem áhugaverðan áfangastað í haust og vetur. Um er að ræða samstarfsverkefni iðnaðarráðuneytisins og fyrirtækja í ferðaþjónustu undir forystu Ferðamálastofu.

Samdráttur er talinn fyrirsjáanlegur í ferðaþjónustu á heimsvísu og blikur á lofti í greininni hérlendis að mati ferðaþjónustuaðila. Ríkisstjórnin hefur brugðist við óskum þeirra um aðgerðir með því að samþykkja að veita 50 milljónum króna í sérstakt markaðsátak erlendis í því skyni að hvetja til Íslandsferða í haust og í vetur – og reyna þannig að efla greinina utan háannatímans. Ferðaþjónustufyrirtæki taka þátt í átakinu með framlögum umfram núverandi markaðsáætlanir og er áætlað að alls verði um 100 milljóna króna viðbótarfé að ræða til ráðstöfunar í þetta verkefni.

Ráðherra ferðamála, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, tilkynnti um markaðsátakið í dag, að lokinni skoðunarferð um vestnorrænu ferðakaupstefnuna sem nú stendur yfir í Reykjavík.

Ferðamálastofa hefur umsjón með markaðsátakinu og er undirbúningur þess á lokastigi. Verður fjármununum einkum varið til auglýsingaherferða á helstu vetrarmörkuðum ferðaþjónustunnar; í Bandaríkjunum, annarsstaðar á Norðurlöndunum, Bretlandseyjum og helstu markaðssvæðum á meginlandi Evrópu. Ekki er um styrki að ræða til einstakra ferðaþjónustuaðila, heldur almennt markaðs- og landkynningarverkefni sem ætlað er að auka áhuga erlendra ferðamanna á Íslandi sem áfangastað á næstu misserum.

Markaðssetning á Íslandi utan háannatímans hefur verið að skila góðum árangri og hefur orðið til þess að styrkja enn frekar rekstrargrundvöll ferðaþjónustunnar innanlands. Í ljósi þess samdráttar sem blasir nú við í ferðalögum á heimsvísu er hins vegar nauðsynlegt að spýta í lófana. Vegna gjaldeyrisþróunarinnar undanfarið er jafnframt sóknarfæri á erlendum mörkuðum fyrir ferðaþjónustuna þar sem mun hagkvæmara er nú fyrir erlenda ferðamenn að ferðast til Íslands en verið hefur.

Nánari upplýsingar veitir:

Ólöf Ýrr Atladóttir,ferðamálastjóri, Sími 535 5500 / 695 2039,

olof@icetourist.is




Þetta vefsvæði byggir á Eplica