Forsíða IVR
-
Myndin sýnir ferðamenn við Skógarfoss
Eitt hundrað milljónum úthlutað til ferðaþjónustu
Eitt hundrað milljónum króna hefur verið úthlutað til fjörtíu ferðaþjónustuverkefna um allt land. Styrkirnir eru fjármagnaðir af byggðaáætlun og er ætlað að renna frekari stoðum undir uppbyggingu atvinnugreinarinnar á landsbyggðinni.
Alls bárust 210 umsóknir um styrkina og lýsir það þeirri grósku sem er í ferðaþjónustu hér á landi. Styrkir til menningar- og heilsuferðaþjónustu eru áberandi en einnig til náttúruskoðunar ýmiss konar.
Hér má sjá lista yfir styrkþega sem fengu úthlutað (xls)
Hér má sjá lista yfir styrkþega sem fengu úthlutað (pdf)
