Fréttabréf 0502 - Samkeppni um rafrænt samfélag.
Samkeppni um rafrænt samfélag
Í þingsályktun um byggðamál kemur fram að efna skuli til samkeppni meðal
sveitarfélaga á landsbyggðinni um rafrænt samfélag. Forval vegna þessarar
samkeppni fór fram í byrjun árs. 13 byggðarlög tóku þátt í forvalinu, en um
var að ræða einstök sveitarfélög eða nokkur samliggjandi sveitarfélög sem
áttu sameiginlega hagsmuni varðandi hagnýtingu upplýsinga- og
fjarskiptatækninnar. Fjögur sveitarfélög voru valin til þátttöku í
samkeppninni og fékk hvert þeirra 1,6 m.kr. til að fullvinna hugmyndir
sínar. Sérstök valnefnd fór yfir verkefnin og valdi þau tvö sem áfram hljóta
stuðning.
Að þessum verkefnum standa annars vegar sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og
Ölfus, undir verkefnaheitinu „Sunnan 3", og hins vegar sveitarfélögin
Aðaldælahreppur, Húsavíkurbær og Þingeyjasveit, undir verkefnaheitinu
„Virkjum alla."
Framlag ríkisins til þróunarverkefna rafræns samfélags nemur samtals 120
m.kr. sem fara til framkvæmdar þeirra á þriggja ára tímabili. Framlag
sveitarfélaganna er nokkuð hærra svo verðmæti þróunarverkefnanna er um 300
m.kr. alls á tímabilinu.
Fyrirmynd þessa þróunarverkefnis er að finna í Nova Scotia í Kanada, en þar
var haldin sambærileg samkeppni milli sveitarfélaga um „Smart Communities".
Í ljósi þess að kannanir hafa sýnt að notkun upplýsingatækni á
landsbyggðinni er talsvert á eftir notkuninni á höfuðborgarsvæðinu var lagt
til við gerð byggðaáætlunar að ráðast í þetta verkefni.
Um verkefnin
Í umsögn valnefndar kemur m.a. fram að meginstyrkur verkefnisins „Sunnan 3"
felist í víðtækum áætlunum um beitingu upplýsinga- og fjarskiptatækni til að
ná fram skilvirkari stjórnsýslu og verulegri hagræðingu í rekstri
sveitarfélaganna þriggja.
Í umsögn valnefndar um verkefnið „Virkjum alla" kemur fram að í verkefninu
sé megin áhersla lögð á uppbyggingu upplýsingatorga fyrir íbúana og á rafræn
viðskipti, auk samhliða uppbyggingar á tæknilegri og samfélagslegri
grunngerð.
