Fréttabréf 0502 - Sænsk- íslensk viðskiptaráðstefna.
Sænsk-íslensk viðskiptaráðstefna.
Þann 8. október sl. flutti Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, ræðu á ráðstefnu sem haldin var í Stokkhólmi um viðskipti
Íslands og Svíþjóðar. Ráðstefnan var skipulögð af Norden i Fokus í samvinnu
við sendiráð Íslands í Stokkhólmi. Í ræðu sinni fjallaði ráðherrann m.a. um
vaxandi starfsemi íslenskra fyrirtækja í Svíþjóð og svaraði fyrirspurnum
ráðstefnugesta um íslenskt viðskiptalíf. Meðal ræðumanna á ráðstefnunni var
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings Búnaðarbanka, og fjallaði
hann um reynslu bankans af starfseminni í Svíþjóð. Í ferðinni átti Valgerður
fund með Svavari Gestsyni sendiherra og starfsfólki hans þar sem ráðherra
voru kynnt ýmiss verkefni sem unnið er að í sendiráðinu til að efla
viðskipti á milli Íslands og Svíþjóðar.
