Frétabréf 0502- Fundur norrænna iðnaðarráðherra í Gauðtaborg.
Fundur norrænna iðnaðarráðherra í Gautaborg.
Á árlegum fundi norrænu iðnaðarráðherrana 29. september í Gautaborg setti Valgerður Sverrisdóttir fram áherslur Íslands á formennskuári þess 2004. Meðal áhersluatriða er að Norðurlöndin verði sameiginlegur markaður án hindrana á landamærum. Ljóst er atvinnulífið í löndunum býr við mismunandi starfsskilyrði sem nauðsynlegt er að samræma. Nú liggur fyrir úttekt á mismunandi stöðu almennings í löndunum og þeim vanda sem þeim mætir við flutninga á milli landanna. Í formennskutíð Íslands verður gerð úttekt á starfsskilyrðum atvinnulífsins og bent á leiðir til að jafna þau og samræma starfsumhverfi þeirra m.t.t. laga og reglugerða. Ísland mun einnig beita sér fyrir því að brúa bilið á milli vísindasamfélagsins og atvinnulífsins á Norðurlöndum. Mikilvægt er að skapa víðtækan skilning á þeim mikilvægu samlegðaráhrifum sem unnt er að skapa með nánara samstarfi á milli þeirra. Iðnaðrráðuneytið mun leita samstarfs við menntamálaráðuneytið um þetta verkefni.
Á næsta ári verður til ný norræn stofnun Nordisk Innovations Center, eða Norræna nýsköpunarmiðstöðin, sem tekur við verkefnun Norræna iðnaðarsjóðsins og Norrænu prófunarstofunnar. Við þetta verða til nýjar áherslur í norrænu samstarfi þar sem aukin áhersla verður lögð á að skapa virkt samstarf á milli þeirra sem stunda nýsköpun fyrir atvinnulífið á Norðurlöndum, en minni áhersla lögð á styrki til þróunarverkefna. Sú ábyrgð mun falla á formennsku Íslands að móta starfsemi þessarar nýju stofnunar og tryggja henni brautargengi á Norðurlöndum og í hinu Evrópska nýsköpunarumhverfi.
