Alþjóðlegur fundur IPHE á Íslandi
Dagana 23. og 24. september var haldinn í Reykjavík fundur framkvæmdanefndar IPHE, (International Partnership for the Hydrogen Economy), en um er að ræða alþjóðlegt samstarf 15 þjóða á sviði vetnismála, sem stofnað var til að frumkvæði Bandaríkjanna í nóvember 2003.
Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir ávarpaði fundinn í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 23. september en um 80 manns frá 20 þjóðlöndum sóttu fundinn.
Á fundinum í Reykjavík voru tvö meginmál til umræðu:
Í fyrsta lagi skipulag starfsins með áherslu á menntun og alþjóðatengsl á sviði vetnisþróunar.
Í öðru lagi var fjallað um vetnisverkefni víða um heim og þá þróun og árangur sem náðst hefur. Fulltrúar ýmissa landa og svæða fjölluðu um verkefni á sviði vetnisþróunar.
Fulltrúar samtaka bílaframleiðenda kynntu einnig sjónarmið sín á fundinum en miklum fjármunum er varið af þeirra hálfu til þróunar vetnisbifreiða sem ætlunin er að markaðssetja innan 10 -15 ára.
Ísland er ásamt Þýskalandi í formennsku fyrir framkvæmdanefnd IPHE og er Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor annar formanna nefndarinnar, ásamt Hanns-Joachim Neef frá Þýskalandi, Ágúst Valfells frá Orkustofnun er einnig fulltrúi Íslands í nefndinni.
Á fundinum var samþykkt framkvæmdaáætlun nefndarinnar næstu misseri sem ber heitið "Reykjavík Action Plan".Vetnisstöðvum fer ört fjölgandi víðs-vegar um heim og eru þær nú um 87 talsins og var sú síðasta vígð í Perth í Ástralíu fyrir viku síðan.
Í Japan eru þegar hafin þróunarverkefni á sviði vetnis í 31 borg, sem tengjast bifreiðum sem og rafmagnskerfum. Rannsóknir á sviði vetnis eru afar fjölbreytilegar svo sem vetnisnotkun bifreiða, orkugeymsla og notkun á raforkukerfi til almennings, vetnisframleiðsla, o.fl.
Þess má geta að íbúafjöldi stofnþjóða IPHE er um 3,5 milljarðar og þau lönd standa fyrir um 85% af landsframleiðslu heimsins (GDP), og 75% af allri raforkuframleiðslu og útblæstri gróðurhúsagass á jörðinni.
Fundur framkvæmdanefndar IPHE sem nú er haldinn hér á landi byggir á stofnsáttmála IPHE sem og áherslum og stefnumörkun stjórnarnefndar IPHE frá fundi sem haldinn var 25.–27. maí sl. Þann fund sóttu af Íslands hálfu Baldur Pétursson, iðnaðarráðuneyti og Gunnar Pálsson, sendiherra, sem þar eiga sæti.
Starfsemi IPHE fer fram í tveim nefndum, annars vegar stjórnarnefnd og hins vegar framkvæmdanefnd. Skrifstofa IPHE í Washington sér um rekstur samstarfsins og er kostuð af Bandaríkjunum.
Markmið IPHE samstarfsins er að efla alþjóðlega þróun og skilvirkt samstarf og verkefni á sviði vetnisrannsókna, til að auðvelda þróun hagkerfa í átt að vetnisvæðingu. Vaxandi umsvif eru á sviði vetnismála hjá flestum aðildarlöndum og auknu fjár-magni er varið til málaflokksins.
Áherslur á sviði vetnis tengjast stefnumörkun margra landa á sviði umhverfismála og viðleitni til að draga úr mengun og gróðurhúsalofttegundum, sem og að treysta öryggi í orkuöflun. Takmarkaðar olíubirgðir heims og sveiflur á verði olíu hefur ýtt enn frekar undir þróun á vetni sem nýjum valkosti sem orkubera.
Þátttaka Íslands í starfi IPHE er í samræmi við stefnumörkun stjórnvalda á sviði vetnis- og orkumála er miðar að þróun í átt að vetnisvæddu hagkerfi, svo fljótt sem það verður tæknilega og efnahagslega hagkvæmt. Einn þáttur þessarar stefnu er að á Íslandi geti orðið vettvangur alþjóðlegra vetnisrannsókna, þar sem lögð verði áhersla á hagstæð starfsskilyrði, alþjóðlegt samstarf, þróun tilraunaverkefna og þekkingu.
Verkefni á sviði vetnisrannsókna hér á landi hafa vakið alþjóðlega athygli.
Í ferðum eftir fundinn var gestum kynnt og sýnd vatns- og gufuaflsstöðvar á suðurlandi samhliða öðrum kynningum frá Landsvirkjun ofl.
Á heimasíðu IPHE http://www.iphe.net/ilciceland.htm má sjá nánari fréttir og myndir af fundinum, m.a. ávarp Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra
