Fréttatilkynningar

15.12.2008 : Norðurslóðaáætlun 2007-2013.

Á stjórnarfundi Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 þann 4. desember sl. voru til afgreiðslu 9 aðalverkefnisumsóknir og voru 4 þeirra samþykktar. Lesa meira
 

10.12.2008 : Verkefni um sjávartengda ferðaþjónustu

Verkefnið Marine-Based Employment Opportunities (MBEO), sem aðilar frá Íslandi, Írlandi og Noregi eiga aðild að, fékk nýlega forverkefnisstyrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPP). Lesa meira
 

27.11.2008 : Undirbúningur fyrir útboð á sérleyfum til olíuleitar á Drekasvæðinu gengur vel

Í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar vinna iðnaðarráðuneytið og Orkustofnun nú að undirbúningi fyrsta útboðs á sérleyfum til rannsóknar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði með góðri aðstoð og stuðningi ýmissa aðila. Lesa meira
 
Undirritun samstarf við Mitsubishi

21.11.2008 : Samstarf við Mitsubishi um hagkvæmniathugun á framleiðslu eldsneytis

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu í morgun með japanska fyrirtækinu Mitsubishi, Heklu hf. Orkustofnun og Nýsköpunarmiðstöð Íslands um gerð hagkvæmniathugunar fyrir byggingu og rekstur eldsneytisverksmiðju á Íslandi.

Lesa meira

 

30.10.2008 : Ferðamálaþing 20. nóv. n.k.

Iðnaðarráðuneytið og Ferðamálastofa gangast fyrir ferðamálaþingi á Grand Hótel fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi. Yfirskrift þingsins er Öflug ferðaþjónusta, allra hagur; tækifæri ferðaþjónustunnar á umbrotatímum. Lesa meira
 

28.10.2008 : Ferðaþjónstan mikilvægur drifkraftur.

Ferðamálaráð hefur lagt eftirfarandi tillögur fyrir iðnaðarráðherra en ferðamálaráði er m.a. ætlað að vera ráðherra til ráðgjafar um kynningarmál ferðaþjónustunnar og áætlanir í ferðamálum:

Lesa meira
 

10.10.2008 : Ferðaþjónustureikningar Hagstofu Íslands 2000-2006

Hagstofa Íslands hefur nú birt í fyrsta sinn ferðaþjónustureikninga fyrir Ísland samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Niðurstöður þessara reikninga sýna meðal annars að árin 2000-2006 var hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu að meðaltali 4,6% Lesa meira
 
Undirskrift samnings um Hátækni- og sprotavettvang

3.10.2008 : Hátækni- og sprotavettvangur

Í morgun var skrifað undir samning um Hátækni- og sprotavettvang. Tilgangur samstarfsvettvangsins er að móta vegvísi til framtíðar um uppbyggingu hátækniiðnaðar og sprotafyrirtækja á Íslandi. Lesa meira
 
Ráðherra með Birgi Þorgilssyni og Ólöfu Ýrr Atladóttur

16.9.2008 : Markaðsátak í ferðamálum í haust og vetur

Allt að 100 milljónum króna verður varið í sérstakt átak á næstu mánuðum til að markaðssetja Ísland erlendis sem áhugaverðan áfangastað í haust og vetur. Um er að ræða samstarfsverkefni iðnaðarráðuneytisins og fyrirtækja í ferðaþjónustu undir forystu Ferðamálastofu.

Lesa meira

 

15.9.2008 : Vatnalaganefnd segir þverpólitíska sátt um vatnið.

Vatnalaganefnd hefur lokið athugun sinni á nýjum vatnalögum nr. 20/2006 og er einhuga um að leggja til að gildistöku laganna verði frestað meðan unnið verði að breytingum á þeim. Nefndin setur fram tillögur að breytingum í fjórum tölusettum liðum og leggur jafnframt til að þær verði unnar samhliða innleiðingu vatnatilskipunar ESB í íslenskan rétt. Nefndin hefur skilað tillögum sínum til iðnaðarráðherra, ásamt ítarlegri skýrslu um vatnsréttindi og vatnalöggjöf (Bók 215 síður).

Lesa meira

 

12.9.2008 : NORA samstarf á Norður-Atlantssvæðinu Verkefnastyrkir 2008

Norræna Atlantsnefndin (NORA) styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu í þeim tilgangi að byggja upp sterkt norrænt svæði og efla sjálfbæra þróun.

Lesa meira
 
Bandaríkjanna og Nýja Sjálands um græna orkuþróun hjá eyþjóðum

12.9.2008 : Ísland gerir samstarfssamning við Bandaríkin og Nýja Sjáland um græna orkuþróun hjá eyþjóðum

Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, sat fund þ. 27. ágúst með Katharine Fredriksen, aðstoðarráðherra í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna, þar sem hann undirritaði fyrir hönd Íslands samning um alþjóðlegt samtarf sem lýtur að þróun á tækni og aðferðum til þess að auka notkun endurnýjanlegrar orku hjá eyþjóðum, International Partnership for Energy Development in Island Nations (EDIN). Bandaríkin og Nýja Sjáland undirrituðu samninginn upphaflega 24. júlí s.l. Lesa meira
 
Undirritun á blaðamannafundi í Keili

28.8.2008 : Samtak Ástralíu, Bandaríkjanna og Íslands um hátækni og aukin afköst jarðvarmakerfa

Nýr kafli í samskiptum Bandaríkjanna, Ástralíu og Íslands hófst í dag með undirritun alþjóðlegs samstarfssamnings um jarðhitatækni í húsakynnum Keilis hf. á Keflavíkurflugvelli en þar voru lögð drög að þessu vísinda- og tæknisamstarfi fyrir réttu ári.

Lesa meira

 

18.8.2008 : Þriðji umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar opinn

Þriðji umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar opnaði 15. ágúst og stendur til 26. september með ákvörðunardagsetningu 5. desember. Lesa meira
 
Ráðherra og Þorsteinn Ingi Sigfússon

9.7.2008 : 180 milljónir í verkefni byggðaáætlunar 2008-2009

Iðnaðarráðuneytið og Nýsköpunarmiðstöð hafa gert með sér samkomulag um framkvæmd verkefna byggðaáætlunar 2008-2009 sem unnin verða á starfsstöðvum Nýsköpunarmiðstöðvar í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Ísafirði og Höfn í Hornafirði. Lesa meira
 

1.7.2008 : Fjórtán styrkir til að rannsaka og kynna innlenda orkugjafa og hagkvæma orkunotkun

Iðnaðarráðuneyti - fréttatilkynning nr 16/2008
Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsókar- og kynningarverkefna fyrir árið 2008. Styrkirnir eru veittir verkefnum sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Lesa meira
 

26.6.2008 : Viljayfirlýsing um álver á Bakka við Húsavík framlengd

Fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnar Íslands og Norðurþings framlengdu í dag viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík, til 1. október árið 2009. Um er að ræða framlengingu og uppfærslu á viljayfirlýsingu þessara aðila sem undirrituð var í maí árið 2006. Lesa meira
 

26.6.2008 : Ferðamálaráð fagnar tillögum nefndar um skipulag ferðaþjónustu

Ferðamálaráð lýsti á fundi sínum 13. júní sl. stuðningi við meginatriði tillagna sem settar eru fram í niðurstöðum nefndar um skipulag og fjármögnun í ferðaþjónustu sem iðnaðarráðherra skipaði í febrúar á þessu ári og skilaði áliti sínu í lok maí.

Lesa meira

 
Úr Þórsmörk

25.6.2008 : Ferðamálastofa verði efld og fjárfesting í markaðssetningu aukin

Nefnd sem iðnaðarráðherra skipaði um miðjan febrúar 2008 til að fjalla um skipulag og fjármögnun ferðaþjónustu hefur skilað tillögum sínum. Tillögurnar eru mikilvægur þáttur í endurskoðun á ferðamálaáætlun og framtíðarskipan málaflokksins eftir flutning hans til iðnaðarráðuneytis.

Lesa meira
 

20.6.2008 : Iðnaðarráðherra stýrir kynningu á hátæknifyrirtækjum í orkugeiranum

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mun í dag, 20. júní 2008, stýra kynningu á nokkrum hátæknifyrirtækjum á fundi með sendinefnd Lesa meira
 

10.6.2008 : Aukið samstarf Íslands og Ameríkuríkja

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sótti dagana 1.-3. júní utanríkisráðherrafund Ameríkuríkja (OAS) í borginni Medellín í Kólumbíu í tilefni af því að Íslandi hefur verið veitt aukaaðild að samtökunum.

Lesa meira

 
Iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson

9.6.2008 : 172 milljónum úthlutað til jarðhitaleitar á 29 stöðum

Orkuráð hefur á fundi sínum hinn 7. júní á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri úthlutað samtals 172 milljónum til jarðhitaleitar á 29 stöðum þar sem ekki nýtur hitaveitu. Miðað við kostnaðaráætlanir umsækjenda verður á næstunni starfað við jarðhitaleit fyrir nær 300 milljónir króna. Lesa meira
 

4.6.2008 : Þriðji umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar 2007-2013

Þriðji umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar opnar 20. júní og stendur til 26. september með ákvörðunardagsetningu 5. desember. Opið verður fyrir umsóknir í báðar áherslur áætlunarinnar sem eru: 1. Nýsköpun og samkeppnishæfni, 2. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda og samfélags. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra

2.6.2008 : Fjögur frumvörp á orkusviði samþykkt sem lög

Á síðustu dögum Alþingis fyrir sumarhlé voru samþykkt þrenn lög sem iðnaðrráðherra lagði fram í frumvarpsformi í vetur. Í apríl samþykkti Alþingi sem lög frumvarp iðnaðarráðherra um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum. Lesa meira
 

28.5.2008 : Iðnaðarráðherra á ársfundi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins: 4.5 milljarða áhættusjóður og brú yfir „nýsköpunargjána“

Í upphafi ársfundar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík í morgun, tilkynnti Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, að náðst hefði samkomulag um stofnun Frumtaks, samlagssjóðs stóru bankanna þriggja, stærstu lífeyrissjóða landsins og Nýsköpunarsjóðs. Lesa meira
 
Orkuráðherrar Tyrklands og Íslands

7.5.2008 : Samstarf milli Íslands og Tyrklands í orkumálum

Mehmet Hilmi Güler, orku- og auðlindaráðherra Tyrklands og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra áttu í morgun viðræður í iðnaðarráðuneytinu um samstarf Íslands og Tyrklands á sviði orkumála. Lesa meira
 

11.4.2008 : Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Eyþings

Í gær úthlutaði Menningarráð Eyþings styrkjum samkvæmt menningarsamningi Eyþings, menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis. Lesa meira
 

7.4.2008 : Árangurssríkir ráðherrafundir í Jemen

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra átti í dag fund með forsætisráðherra Jemen, Ali Mojawar í höfuðborginni Sana Lesa meira
 

4.4.2008 : Sjötíu og sjö styrkir veittir

Gengið hefur verið frá styrkveitingum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009. Styrkirnir voru auglýstir í janúar s.l. og voru 160 milljónir króna til úthlutunar. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar og bárust alls 303 umsóknir. Alls hlutu 77 verkefni styrk.

Lesa meira

 

11.3.2008 : Styrkir til jarðhitaleitar og rannsókna 2008

Orkusjóður auglýsir styrki til jarðhitaleitar og rannsókna. Lesa meira
 

8.3.2008 : Samstarf við Bandaríkin í orkumálum

Í vikunni var fram haldið viðræðum í Washington undir forystu Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra og Alexander Karsners, aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna, um samstarf í orkumálum. Lesa meira
 

7.3.2008 : Þjónustusamningur um hönnunarmiðstöð

Þjónustusamningur um rekstur hönnunarmiðstöðvar var undirritaður í dag af iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra og níu aðildarfélögum að Hönnunarmiðstöð Íslands ehf. Ráðuneytin leggja alls 20 millj. kr. til rekstur miðstöðvarinnar á ári næstu þrjú ár.
Lesa meira
 

3.3.2008 : Iðnaðarráðherra á ráðstefnu um græna orku í Washington

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu Bandaríkjastjórnar um endurnýjanlega orku, WIREC2008, sem haldinn er í Washington frá þriðjudegi til fimmtudags í þessari viku. Lesa meira
 

29.2.2008 : Norðurslóðaáætlun 2007 - 2013

Norðurslóðaáætlun 2007-2013 hófst formlega með sérstakri ráðstefnu   í Aviemore, Skotlandi  dagana  20-21  febrúar 2008.  Samtals er varið til áætlunarinnar 45 milljónum evra og gert er ráð fyrir mótframlögum  verkefnaþátttakenda að fjárhæð um 33.6  milljónum evra.  

Lesa meira

 

21.2.2008 : Styrkir til þróunarverkefna í ferðaþjónustu

Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 100 milljónum króna af fé Byggðaáætlunar 2007 ? 2009 til þriggja þróunarverkefna í ferðaþjónustu. Lesa meira
 

21.2.2008 : Nefnd um aðkomu ríkisins að skipulagi og fjármögnun í ferðaþjónustu

Iðnaðarráðherra hefur skipað nefnd undir formennsku Svanhildar Konráðsdóttur, formanns ferðamálaráðs, í því skyni að gera tillögur til undirbúnings ákvarðana í tengslum við endurskoðun á ferðmálaáætlun til 2015. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson og Pálmar Sigurðsson Hópbílar

20.2.2008 : Dagur menntunar í ferðaþjónustu

Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, afhenti í gær starfsmenntaviðurkenningu SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar 2008 á Degi menntunar í ferðaþjónstu.   Lesa meira
 

19.2.2008 : Skýrsla starfshóps um smávirkjanir

Starfshópur um smávirkjanir hefur skilað áliti og lagt til að gerðar verði breytingar á skipulags-og byggingarlögum, svo og raforkulögum og reglugerðum þannig að öll mannvirkjagerð við virkjanir verði byggingarleyfisskyld og háð reglubundnu byggingareftirliti. Lesa meira
 

1.2.2008 : Iðnaðarráðherra kynnir jarðhitamál í Brussel

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og Andris Piebalgs, orkumálastjóri framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,Möguleikar til nýtingar á jarðhita voru í fyrsta sinn teknir til umræðu á vettvangi Evrópusambandsins á ráðstefnu sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra efndi til í Brussel í dag í boði Andris Piebalgs, orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra Katars Yousef Kamal undirrita samninga milli Íslands og Katars.

23.1.2008 : Samningar undirritaðir milli Íslands og Katar

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Yousef Kamal, fjármálaráðherra Katars, skrifuðu í dag undir samning um samstarf Íslands og Katar á sviði efnahags-, viðskipta- og tæknimála. Í samningnum er kveðið á um að ríkin starfi saman í iðnaði, orkumálum, landbúnaði, sjávarútvegi, samgöngum, fjarskiptum, byggingariðnaði, ferðamálum, vinnumarkaðsmálum og fleiri sviðum. Lesa meira
 

14.1.2008 : Mikill áhugi á þátttöku í nýrri Norðurslóðaáætlun fyrir árin 2007-213 - fjöldi umsókna og breið þátttaka.

Ísland tekur þátt nýrri Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins fyrir tímabilið 2007-2013. (Northern Periphery Programme - NPP). Þátttökulöndin auk Íslands eru Finnland, Svíþjóð, Skotland, Norður Írland, Írland, Noregur,Grænland og Færeyjar Lesa meira
 
Ólöf Ýrr Atladóttir með iðnaðarráðherra

2.1.2008 : Ólöf Ýrr Atladóttir skipuð ferðamálastjóri

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, sem tók við málefnum ferðaþjónustunnar um áramótin, hefur ráðið Ólöfu Ýrr Atladóttur, framkvæmdastjóra vísindasiðanefndar, ferðamálastjóra frá 1. janúar 2008 til næstu fimm ára. Samgönguráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í nóvember sl. Lesa meira
 
Guðni A. Jóhannesson

2.1.2008 : Guðni A. Jóhannesson skipaður orkumálastjóri

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ráðið prófessor Guðna A. Jóhannesson PhD, sem nú gegnir stöðu forstöðumanns Byggingartæknideildar Konunglega Verkfræðiháskólans í Stokkhólmi, orkumálastjóra frá 1. janúar 2008 til næstu fimm ára.

Lesa meira

 

Fréttir eftir árum...


Þetta vefsvæði byggir á Eplica