Íslandsmet í komu erlendra ferðamanna!
Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur!
Á árinu 2011 sóttu rúmlega 565 þúsund erlendir ferðamenn Ísland heim sem er 15,8% fjölgun frá fyrra ári. Mikilvægi ferðaþjónustunnar fer stöðugt vaxandi fyrir samfélagið og hún er komin á bekk með sjávarútveginum og stóriðjunni þegar kemur að sköpun gjaldeyristekna.
Ferðamálastofa birti nýlega niðurstöður könnunar sem framkvæmd var síðasta sumar meðal erlendra ferðamanna. Í henni kennir ýmissa grasa og með hæfilegri einföldun sem felst í því að taka ævinlega hæstu gildin í hverjum flokki má teikna upp mynd af hinum dæmigerða erlenda ferðamanni.
Hjónin bandarísku ferðuðust á eigin vegum og þau notuðu netið til að afla sér upplýsinga um land og þjóð. Það var íslensk náttúra og menning öðru fremur sem dró þau hingað. Þau leigðu sér bílaleigubíl og gerðu víðreist m.a. um Suðurland og voru dugleg að fara í sund og náttúruböð, auk þess sem þau skoðuðu sýningar, fóru í hvalaskoðun og í útreiðartúr. Hjónin eru vel menntuð og með laun í góðu meðallagi og á ferðalaginu vörðu þau tæplega 370.000 kr. í alls kyns vöru og þjónustu.
Það er skemmst frá því að segja að þau voru mjög ánægð með ferðina og það sem stendur upp úr er náttúran, Bláa lónið, Reykjavík og íslensk gestrisni. Það kemur því ekki á óvart að þau stefna að því að koma aftur hingað til lands.
Það er vel þess virði að gefa sér tíma til að glöggva sig á könnuninni til að fá fyllri mynd af því hverjir það eru sem velja Ísland sem áfangastað og fá um leið skilning á því eftir hverju þeir eru að sækjast og hvað þykir vel gert og hvaða þætti megi betrumbæta.

