Um hönnunarstefnuna

Um verkefnið Mótun hönnunarstefnu Íslands

Markmiðið með því að móta hönnunarstefnu fyrir Ísland er að auka vægi hönnunar í allri vöruhugsun, vöruþróun og framleiðslu með það að sjónarmiði að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og til að auka verðmætasköpun. Hönnun þarf að vera ómissandi hluti gangverks fyrirtækja og hún þarf að vera samtvinnuð inn í hugsun þeirra og áætlanir.

Þjóðir heimsins virðast vera að átta sig á styrknum sem felst í stórfelldri nýtingu hönnunar í ferlum fyrirtækja og stofnana. Slíkt eflir hagkerfið, nýsköpun og samkeppni, ásamt því að skapa sjálfstæð og sjálfbær atvinnutækifæri.

Hönnun og hönnunarmiðuð aðferðarfræði getur bætt samkeppnishæfni landa þar sem hún kemur inn á samfélagsleg gildi, umhverfissjónarmið, sem og efnahagsleg gildi. Bretland hefur áttað sig á þessu og hafa sett hönnun í hjarta framleiðslunnar til að auka samkeppnishæfni sína, og aðferðafræði hönnunar eða hönnunarmiðaðrar nýsköpunar spilar nú stóra rullu í mótun annarra opinberra stefna þar í landi, s.s. í heilbrigðisgeiranum, tæknigeiranum og í almenningsþjónustu.

Sumar þjóðir hafa markað sér heildstæða hönnunarstefnu (Finnland, Danmörk) en annars staðar er stefnan svæðisbundin (Frakkland, Ítalía, Þýskaland). Í þeim löndum þar sem kerfum hefur verið komið á til að ýta undir hönnun - hefur nú þegar verið sýnt fram á jákvæðar niðurstöður; skilningur á hugtakinu hönnun og notagildi hennar hefur aukist. Þessi kerfi sýna líka fram á tækifærin sem felast í því að móta hönnunarstefnu og styðja við hana. Það er sumsé sterk fylgni milli þess að hafa hönnunarstefnu og þess að vera framarlega á sviði hönnunar. En einnig hefur verið sýnt fram á að fylgni er á milli stöðu hönnunar og samkeppnishæfni landa, og því má álykta að það hafi efnahagslegan ávinning að ýta undir hönnun.

Verkefnið Mótun hönnunarstefnu Íslands var sett á laggirnar í byrjun árs 2011 af Hönnunarmiðstöð, Iðnaðarráðuneyti og Mennta- og menningarmálaráðuneyti, sem tilnefndu hver sinn fulltrúa í stýrihóp um verkefnið. Stýrihópinn skipa: Sigurður Þorsteinsson, fulltrúi tilnefndur af iðnaðarráðherra og formaður stýrihóps, Sóley Stefánsdóttir, fulltrúi tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra og Halla Helgadóttir, fulltrúi tilnefnd af stjórn Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Að verkefninu koma einnig Hanna Dóra Másdóttir, Iðnaðarráðuneyti, og Katla Maríudóttir.

Opinn hugmyndafundur var haldinn 15. júní 2011 þar sem áhersla var lögð á að fá fram aðaláherslur og sýn hönnuða um hönnunarstefnu í opinni umræðu jafnframt því að ná fram samtali við aðila atvinnulífs og stjórnsýslu.

Í lok sumars, 26. ágúst 2011, verður haldin opin ráðstefna með sömu formerkjum, þar sem farið er dýpra og markvissar í hönnunarstefnuvinnuna. Erlendir fyrirlesarar kynna mismunandi reynslu af þeim ólíku hönnunarstefnum sem nágrannalönd okkar hafa og innlendir fyrirlesarar fara í gegnum stöðuna hérna heima og hver brýnustu málefnin eru.

Þeir sem vilja koma athugasemumdum sínum á framfæri eru hvattir til að senda skilaboð á katla@honnunarmidstod.is eða hafa samband í síma 663 4596.

Á vormánuðum 2012 verður hönnunarstefnan kynnt.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica