Starfsleyfi til leitar efna til hagnýtingar á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga
Starfsleyfi til leitar efna til hagnýtingar á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga
Samkvæmtlögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, er íslenska ríkið eigandi allra auðlinda á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga.
Leyfi þarf frá iðnaðarráðherra til að leita að og vinna efni úr hafsbotninum utan netlaga. Umsókn skal vera skrifleg og sendast til iðnaðarráðuneytis.
Í umsókn þarf eftirfarandi m.a. að koma fram:
- Nafn, lögheimili og lýsing á starfsemi umsækjanda.
- Til hvaða auðlinda umsóknin nær.
- Tímalengd leyfis.
- Staðarmörk þess svæðis sem umsóknin nær til.
- Lýsing á vinnsluaðferð og skýring á fyrirhuguðum notum.
- Ráðstafanir til að forðast mengun og spillingu á lífríkinu.
- Upplýsingar um þekkingu og hæfni þeirra sem að framkvæmdunum koma, eins og við á.
Nánari upplýsingar um leyfi til leitar og vinnslu efna á, í eða undir hafsbotninum gefur
Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir, deildarsérfræðingur.
Meðferð umsóknar:
Áður en leyfi er gefið út er leitað umsagnar fagaðila. Til að flýta fyrir afgreiðslu er æskilegt að umsækjandi láti fylgja með álitsgerðir, t.d. Hafrannsóknarstofnunar um mat efnisvinnslunnar á lífríkið, einkum með tilliti til fiskimiða, hrygningarstöðva og þessháttar. Ef fyrirhugað vinnslusvæði liggur nærri landi, t.d. skipulagðri byggð, er æskilegt að með fylgi umsögn sveitastjórnar og umhverfisyfirvalda, t.d. Náttúruverndar ríkisins.
