Nefndir
Samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál.
Iðnaðarráðherra hefur, hinn 17. febrúar 1999, skipað samráðsnefnd með fulltrúum frá Orkustofnun, iðnaðarráðuneyti og utanríkisráðuneyti um landgrunns- og olíuleitarmál. Hlutverk nefndarinnar er:
1. Að gæta íslenskra hagsmuna á sviði olíu - og landgrunnsmála, meðal annars með því að fylgjast með olíuleit á nálægum svæðum þar sem ætla má að aðstæðum svipi til þess sem er innan efnahagslögsögu Íslands.
2. Að fylgjast með tækniþróun í olíuleit og olíuvinnslu.
3. Að gera tillögu um stefnu sem skuli fylgt við veitingu rannsókna- og vinnsluleyfa á landgrunninu og taka þátt í mótun reglna um það efni.
4. Að samhæfa vinnubrögð íslenskra stjórnvalda vegna fyrirspurna olíuleitarfyrirtækja og annarra aðila um rannsóknar- og nýtingarleyfi innan efnahagslögsögunnar.
5. Að gera tillögur um kynningu á íslenska landgrunninu til að efla áhuga innlendra sem erlendra aðila á að stunda rannsóknir á því.
6. Að koma fram fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og annast samskipti við þá aðila sem sýna áhuga á rannsóknar- og nýtingarleyfum innan efnahagslögsögunnar.
7. Að gera tillögur til iðnaðarráðherra um rannsóknarverkefni á sviði olíuleitar og landgrunnsmála sem kostuð yrðu af ríkisfé, þar með talið árlegri fjárveitingu á fjárlögum til hafsbotnsrannsókna.
8. Að koma fram fyrir Íslands hönd í samstarfi við norsk stjórnvöld og norsku olíustofnunina vegna Jan-Mayen svæðisins.
9. Að koma fram fyrir Íslands hönd í samstarfi við dönsk og færeysk stjórnvöld vegna Hatton-Rockall svæðisins.
10. Að stuðla að því að gögn varðandi landgrunnið séu varðveitt á einum stað og með skilvirkum hætti.

Hópurinn skal hafa samband við önnur ráðuneyti og stofnanir þeirra eftir því sem þörf er á.
Í samráðsnefndinni eru:
Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir, iðnaðarráðuneyti.
Kristinn Einarsson, Orkustofnun.
Steinar Þór Guðlaugsson, Íslenskum Orkurannsóknum (ÍSOR).
Tómas H. Heiðar, utanríkisráðuneyti.