Beint í leiðarkerfi vefsins.
Iðnaðarráðuneytið fer með málefni tengd auðlindum í jörðu. Lög nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, taka til auðlinda í jörðu í landi, í botni vatnsfalla og stöðuvatna og í sjávarbotni innan netlaga. Lögin taka einnig til rannsókna á vatnsafli til raforkuframleiðslu. Samkvæmt lögunum er með auðlindum átt við hvers konar frumefni, efnasambönd og orku sem vinna má úr jörðu, hvort heldur í föstu, fljótandi eða loftkenndu formi og án tillits til hitastigs sem þau kunna að finnast við.
Orkustofnun sér. um útgáfu leyfa vegna rannsókna og nýtingar á auðlindum í jörðu skv. lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Samkvæmt lögunum skal í umsóknum um rannsóknar- og nýtingarleyfi koma skýrt fram hver tilgangur sé með öflun leyfis ásamt ítarlegum upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir umsækjanda.. Í 18. grein laga nr. 57/1998 er fjallað um þau atriði sem m.a. skal tilgreina í rannsóknar- og/eða nýtingarleyfi skv. lögunum.
Lög um breytingu á nokkrum lögum á auðlinda- og orkusviði, nr. 58/2008. (ensk þýðing)
Lög um breytingu á lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr 13/2001, með síðari breytingum
Vatnalög 15/1923