Ræður og greinar Katrínar Júlíusdóttur

Formlegt upphaf Athafnavikunnar.

24.11.2009

Góðir gestir

Jákvæður kraftur í samfélaginu.

Í því starfi við endurreisn efnahagslífsins sem nú er í gangi skiptir miklu máli að sem flestir hópir taki virkan þátt og móti sína stefnu og sínar áherslur til að takast á við verkefnin framundan.

Þjóðfundurinn á laugardag og nú athafnavikan.

Fólk leitar lausna og er ákveðið í að vinna sig út úr efnahagsvandanum.

Við sjáum það ekki síst í nýsköpunargreinunum, skapandi greinum.

Þar hafa hundruð starfa orðið til frá bankahruninu.

  • Frumkvöðlasetur 150 ný störf
  • CCP og leikjaiðnaðurinn 180 störf – 10 milljaðar og 250 störf
  • Framestore
  • Becromal, HBT, Marorka, Carbon Recycling

Sýnir þann kraft sem býr í hugmyndaríku fólki á 5. hundrað störf.

En ætlum ekki að taka upp áætlunarbúskap þótt hið opinbera gegni veigamiklu hlutverki.

Okkar hlutverk að skapa aðstæður, ykkar að nýta þær.

Við eigum að virkja þann kraft sem býr í atvinnulífinu sjálfu um leið og við stöndum vörð um opinbera samkeppnissjóði til verkefna í atvinnulífinu.

Nú þegar fyrirtæki í vexti geta ekki leitað í jafnmiklum mæli og áður til fjármálastofnana og fjárfesta þurfum við sem stjórnvöld að styrkja verulega allt stuðningsumhverfi fyrirtækja sem við höfum með höndum.

Þess vegna hef ég lagt mikla áherslu á frumvörpin um endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar og ívilnanir vegna fjárfestinga í nýsköpunarfyrirtækjum.

Ég bind vonir við að þessi frumvörp verði fyrir áramót enda hafa nær öll samtök á vinnumarkaði kallað eftir slíkum aðgerðum árum saman.

Rammalöggjöf um ívilnanir vegna erlendra fjárfestinga hér á landi er annað mikilvægt framfaramál.

Í kjölfar rányrkju á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum og hruns fjármála­kerfisins er sjálfbær þróun lykilhugtak sem við hljótum að byggja á.

Sjálfbærni í víðum skilningi á jafnt við um náttúruauðlindir, jafnvægi í efnahagslífi og samfélagslega þróun.

Ef við viljum verja lífskjör okkar og halda áfram að bæta þau þá verðum við að byggja ný atvinnutækifæri á þekkingariðnaði og nýsköpun því náttúruauðlindir eru ekki óþrjótandi.

Með því aukum við líka samkeppnishæfni okkar vegna þeirrar nýsköpunar sem í því felst að finna nýjar og betri lausnir auk þess sparnaðar sem bætt orkunýting eða nýir orkugjafar hefur í för með sér. ESB, USA – Grænar leiðir – iðngarðar - orkuskiptin

Þess vegna vil ég nota athafnavikuna vel sem hvatningu til að ljúka mótun áætlunar um orkuskipti í samgöngum, úr innfluttu kolefnaeldsneyti og yfir í visthæfa innlenda orkugjafa.

Til að gera slíka framtíðarsýn að veruleika þarf athafnafólk, hugmyndasmiði og frumkvöðla.

Megi athafnavikan marka upphafið að því að við nálgumst efnahagserfiðleikana út frá lausnum og leiðum með jákvæðni og trú á íslenskt atvinnulíf að leiðarljósi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica