Ræður og greinar Katrínar Júlíusdóttur

Útskrift Brautargengiskvenna

Ágætu Brautargengiskonur – Til hamingju með daginn

Nú bætist þið í hóp þeirra hundraða kvenna sem lokið hafa Brautargengisnámi á undanförnum 11 árum.

Fyrirrennarar ykkar velta milljörðum og skapa samtals þúsundir starfa.

Mat á árangri af þessu glæsilega verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands gefur bæði okkur og ekki síður ykkur tilefni til bjartsýni.

Samkvæmt mati á árangri verkefnisins 2007 var meirihluti þeirra sem lokið hafa Brautargengi kominn í eigin rekstur sem er frábær árangur.

Og þá er ótalin sú efling sem verkefnið er öllum hinum í sínum störfum og framlagi til samfélagsins.

Við þurfum svo sannarlega á kröftugum og bjartsýnum konum á borð við ykkur að halda til endurreisnar samfélagsins.

Aðeins aukin verðmætasköpun í atvinnulífinu dugar til að mæta þeim efnahagssamdrætti sem hrun fjármálakerfisins olli.

Sem betur fer sjáum við þess skýr merki að nýsköpun og frumkvöðlastarf er að skapa fjölda starfa og að margir sjá tækifæri til uppbyggingar.

Þegar ég lít til minnar ábyrgðar sem iðnaðarráðherra þá tel ég það mikilvægasta verkefni stjórnvalda að fylgja áætluninni um endurreisn efnahagslífsins, leggja grunn að stöðugleika og skapa hagstætt umhverfi fyrir atvinnulífið.

Atvinnulífið er jú undirstaða þess að við getum bætt lífskjörin og staðið undir velferð til framtíðar.

Samhliða þessu þurfum við að bæta enn starfsumhverfi nýsköpunar- og sprotafyrirtækja og efla stoðkerfi atvinnulífsins.

Og á það legg ég sérstaka áherslu hvar sem ég get.

Efling Tækniþróunarsjóðs, kyngreindir styrkir og stofnun Hátækni- og sprotavettvangs voru mikilvæg skref.

Ég vil líka verja og helst efla opinbera samkeppnissjóði til verkefna í atvinnulífinu og gera stoðkerfi atvinnulífsins markvissara.

Frumvörp um endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar og skattaívilnanir vegna fjárfestinga í nýsköpunarfyrirtækjum eru komin til afgreiðslu Alþingis.

Unnið að nýrri stefnumörkun á vegum vísinda- og tækniráðs sem á að ljúka fyrir áramót og frumkvöðlasetrum hefur fjölgað mikið frá haustinu 2008.

Nú á eftir verð ég einmitt viðstödd útskrift glæsilegra nýsköpunarfyrirtækja hjá einu setrinu, Viðskiptasmiðju Klaks.

Í nýlegri úttekt Klaks og Frjálsrar verslunar á íslenskum sprotafyrirtækjum fundust 200 áhugaverðir sprotar, helmingi fleiri en í fyrra.

Þið eigið enn eftir að auðga þann garð.

Þegar við lítum lengra fram á veginn þá þurfum við að finna út hvernig við náum hér stöðugleika og trausti.

Við þurfum atvinnu- og efnahagslíf sem sveiflast ekki sífellt öfga á milli.

Til þess þurfum við að virkja mannauðinn, tengja menntun og atvinnulífi og móta atvinnustefnu sem miðar að aukinni verðmætasköpun með hugviti og nýsköpun.

Við þurfum ekkert eitt til bjargar heldur fjölbreytnina og frumkvöðlaandann.

Þá fjölbreytni sjáum við hér í þessum hópi og þeim verkefnum sem þið hafið unnið að.

Ég er líka þeirrar skoðunar að við þurfum fleiri konur til forystu í atvinnulífinu.

Enn sem komið er eru konur einungis um 20% af þeim sem eiga og reka fyrirtæki á Íslandi.

Því viljum við breyta og Brautargengi er lóð á þá vogarskál.

Ef til vill mun sú breyting líka haldast í hendur við aukinn stöðugleika og langtímahugsun í atvinnumálum.

Rannsóknir hafa sýnt að konur eru almennt varkárari í viðskiptum en karlar.

Á uppgangstímum eignabóla heitir slíkt áhættufælni.

En þegar áhættuhegðun hefur kollkeyrt stórum hluta af fjármálakerfi heimsins má líklega kalla þetta aftur sínum réttu nöfnum; þ.e. ráðdeildarsemi og raunsæi.

Rannsóknir sýna að þegar þeir eiginleikar fara saman við þann undirbúning sem þið hafið fengið til þátttöku í atvinnulífinu og þann kjark sem þið búið yfir þá er engu að kvíða.

Það er virðingarheiti að vera „Brautargengiskona“.

Ég vil þakka Nýsköpunarmiðstöð fyrir þetta farsæla og framúrskarandi verkefni sem veitt hefur svo mörgum góðum hugmyndum og öflugum konum brautargengi.

Ég óska ykkur Brautargengiskonum hjartanlega til hamingju með áfangann og óska ykkur alls hins besta í komandi verkefnum.



Brautargengi hópurinn Útskriftarhópurinn

Brautargengi_radherra_og_fleiri_2Brautargengi_radherra_og_vidurkenningar


Ráðherra og fleiri gestir við útskrift

 

 

 

 

 

 

 

 

Ráðherra og Brautargengiskonur sem hlutu viðurkenningar

 





Stoðval