Ræður og greinar Katrínar Júlíusdóttur
Stofnfundur samtaka um heilsuferðaþjónustu á Íslandi
Góðir gestir
Til hamingju með daginn og þessi glæsilegu samtök.
Ég hef lengi haft sannfæringu fyrir því að Ísland eigi mikla og ónýtta möguleika á sviði heilsu- og lífstílstengdrar ferðaþjónustu.
Við höfum séð mikinn árangur annarra þjóða á þessu sviði og ferðir fólks um hálfan hnöttinn til að komast á áfangastaði sem sérhæfa sig í slíku.
Áhuginn á heilbrigðum lífsstíl fer vaxandi og sífellt fleiri sameina áhuga sinn á heilsueflingu og ferðalögum.
Erlendar rannsóknir benda þess til að ferðamönnum sem sameina þetta tvennt fjölgi um 18% á heimsvísu árlega.
Stór hluti þessara ferðamanna er frá okkar helstu mörkuðum.
Þeir eyða háum fjárhæðum í heilsu og ferðalög sér til heilsubótar og spár benda til að sú fjárhæð fari sífellt hækkandi.
Heilsu- og lífstílstengd ferðaþjónusta getur því skilað miklum virðisauka til þjóðarbúsins og stuðlað að aukningu í ferðaþjónustu utan háannar.
Markaðssetning hennar fellur einnig vel að annarri markaðssetningu og ímyndarsköpun Íslands á erlendum mörkuðum, hvort sem hin ósnortna náttúra, hreinar og heilnæmar afurðir, græna orkan eða sá sköpunarkraftur sem hér býr og birtist í menningu á borð við tónlist og hönnun eða í framsæknum fyrirtækjum.
Heilsu- og lífstílstengd ferðaþjónusta fellur líka mjög vel að markmiðum gildandi Ferðamálaáætlunar en þar er áherslan á að náttúra Íslands, menning þjóðarinnar, byggðafesta og fagmennska verði ráðandi þættir í þróun íslenskrar ferðamála.
Að tryggð verði samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar sem stuðli að hámarksafrakstri í greininni.
Álag vegna ferðaþjónustu verði jafnað á landið og íbúa þess og verði innan þolmarka í samræmi við niðurstöður rannsókna.
Og loks að ímynd Íslands sem ferðamannastaðar verið byggð upp og varin.
Þegar ég ákvað síðastliðið sumar að kalla saman óformlegan starfshóp til að byrja að kortleggja tækifæri okkar á þessu sviði hef ég greinilega verið að hugsa á sömu nótum og margir í ferðaþjónustunni.
Ég vildi meðal annars leggja áherslu á nýtingu heita vatnsins og annarra náttúruauðlinda en því til viðbótar má nefna matarmenninguna, útivist og íþróttaiðkun af öllu tagi og svo þann styrk sem felst í öflugu heilbrigðiskerfi okkar.
Hugarflugsfundurinn sem við héldum í haust var fjölsóttari en nokkur þorði að vona og þaðan kemur brunnur hugmynda sem hin nýstofnuðu samtök geta sótt í.
Vinnuhópurinn sem unnið hefur að stofnun Samtaka um heilsuferðaþjónustu skiptir möguleikunum í tvo þætti:
Annars vegar vellíðunarferðaþjónustu eða Wellness á ensku.
Hins vegar Lækningaferðaþjónustu eða Medical á ensku.
Við getum náð miklum árangri í Wellness ferðaþjónustunni til skamms tíma án þess að leggja í viðamiklar fjárfestingar.
Til lengri tíma litið eru jafnvel enn meiri möguleikar í Medical ferðaþjónustu ef horft til arðsemi og atvinnusköpunar.
Þar erum við hins vegar skemmra á veg komin og þörf á meiri fjárfestingum og formlegu samstarfi við heilbrigðisyfirvöld.
Ég er sammála því mati vinnuhópsins að okkur er ekkert að vanbúnaði að hefja markaðs- og vöruþróun í Wellness ferðamennsku.
Jafnframt þurfum við að hefja fyrir alvöru undirbúnings- og stefnumótunarvinnu í medical þættinum.
Í þessari vinnu munu hin nýstofnuðu samtök gegna leiðandi hlutverki og fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins heiti ég þeim liðsinni í því mikilvæga verkefni.
Með stofnun þessara samtaka er heilsuferðaþjónustan í raun orðin sérstakur geiri innan íslenskrar ferðaþjónustu sem horfa verður til við markaðssetningu landsins í heild.
Formlegt samstarf skapar tækifæri til að kynna markvisst sérstöðu Íslands og setja í samhengi þá öflugu innviðið sem við þegar eigum, svo sem sundlauganna, Bláa lónsins, Jarðbaðanna við Mývatn og starfsemi Náttúrulækningafélagsins.
Þessu til viðbótar hafa Vatnavinir kortlagt heitar laugar á Íslandi í þeim tilgangi að byggja upp atvinnuskapandi starfsemi tengda þeim.
Nóg er af gistingu, samgöngur góðar og margir ferðaskipuleggjendur sem leita að nýrri tegund vöru til að bjóða viðskiptavinum sínum.
Einnig er ýmis afþreying fyrir hendi sem bæta mætti við heilsutengdar ferðir til að gera þær enn áhugaverðari og fjölbreyttari. Er þá ekki síst horft til útivistar af ýmsu tagi; gönguferða, siglinga, líkamsræktar, jóganámskeiða og sjóbaða auk veitingastaða og verslana sem eingöngu bjóða lífrænan mat.
Við erum einmitt stödd hér við eins konar útivistarmiðstöð í hjarta höfuðborgarsvæðsins, við fjölfarin göngu og hjólastíg, siglingaklúbb borgarinnar og ylströndina sem orðin miðstöð sjóbaða sem njóta sívaxandi hylli. Og svo er háskólasamfélagið og háskólasjúkrahúsið í Vatnsmýrinni hér hinu megin.
Mér skilst að á eftir sé okkur einmitt boðið að prófa einn af mörgum heilsusamlegum afþreyingarmöguleikum þessa svæðis.
Ég fagna mjög stofnun þessara samtaka og styð markmið ykkar heilshugar.
Ég hef lengi átt þann draum að Ísland verði þekktur áfangastaður ferðafólks í leit að heilsu- og lífsstílstengdri ferðaþjónustu.
Svona öflugur og áhugasamur hópur aðila úr greininni getur gert slíkt að veruleika.
Meðal verkefna framundan eru frekari rannsóknir, gæðamál og efling nýsköpunar og vöruþróunar í tengslum við heilsuferðaþjónustu.
Þetta verður langhlaup en ég er viss um að við náum glæsilegum millitímum í fyrstu áföngunum.
Ég óska nýkjörinni stjórn og félögum í Samtökunum til hamingju og alls hins besta í mikilvægu starfi.

