Ræður og greinar Katrínar Júlíusdóttur

Hönnunarkeppni verkfræðinema Háskóla Íslands

Kæru þátttakendur, kennarar og aðrir fundargestir.

Það er sönn ánægja að vera boðið að taka þátt í setningu þessarar hönnunarsamkeppni verkfræðideildar HÍ.

Þessi keppni er enn eitt dæmið um mikilvægt framlag til nýsköpunar hér á landi.

Þið eruð á fullu að undirbúa ykkur til að taka þátt í að byggja upp nýtt Ísland. Við á fullu að ræsa aflvélar atvinnulífs, svo ykkar bíði fjölbreytt og spennandi störf að námi loknu.

Þessi keppni sýnir svo ekki sé um villst að hvað hægt er að fara margar leiðir að sama takmarkinu.

Við sjáum hlutina ekki alltaf í  sama ljósi sem gerir alla hluti svo skemmtilega og spennandi, niðurstöðuna óvænta.  Það er drifkraftur framþróunar og nýsköpunar.

Í því felst áskorunin, þið reynið að vinna hina í keppninni. Það sama gerist úti í atvinnulífinu, úti á markaðinum.

Hér hafið þið ákveðið úrlausnarefni til að leysa. Þið sýnið það svo ekki verður um villst hvernig hægt er að leysa sama úrlausnarefnið á marga vegu.

Það er styrkur fyrir okkur sem við eigum að nýta.

Á hverjum degi þarf hver og einn að leysa sín úrlausnarefni, mismunandi að gerð og mismunandi flókin.

Allir hafa ákveðnar væntingar um hvernig þeir vilja hafa hlutina. Sama er með verkefni sem þið hafið leyst núna.

Þið fenguð ákveðinn ramma til að vinna eftir, ákveðnar kröfur sem eru gerðar.

Það sama á við fyrir allan heiminn, einstakar þjóðir, einstök fyrirtæki og markaði.

Við Íslendingar stöndum nú frammi fyrir því að leysa mörg erfið úrlausnarefni til að koma okkur úr þeirri kreppu sem við erum á miðju kafi í.

Það er eins og hjá ykkur margar leiðir að sama marki. Þessar leiðir eru mismunandi langar, miserfiðar og skila misgóðum árangri.

Flestar þjóðir og ekki síst við Íslendingar höfum ærið verkefni að leysa. Í Evrópusambnadinu er talað um mikla fjárhagslega kreppu, eina verstu kreppu sem komið hefur í tugi ára.

Til að leysa okkar verkefni sem þjóð þurfum við að vinna saman, nota okkar sköpunargleði og getu til að finna góða og viðundandi leið úr úr okkar vanda.

Í Evrópusambandinu hefur verið hrint af stað átaki í öllum ríkum sambandsins til þess að vinna saman að því að rífa öll ríki sambandsins úr efnahagskreppunni.

ÞESSi áætlun er kölluð 2020. Hjá ESB er lögð áhersla á eftirfarandi.

1.   Skapa verðmæti og vöxt sem byggist á þekkingu

2.   Sjálfbær markaðshagkerfi

3.   Nýta umhverfisvænar og snjallar lausnir

4.   Virkja sköpunargáfu fólks í öllum ríkjum.

5.    Skapa samkeppnishæft og umhverfisvænt samfélag.

Ríkisstjórnin hefur sett af stað verkefni,stefnumótunarvinnu með það að markmiði að móta stefnu fyrir Ísland til næstu ára.

Þessi stefnumótunarvinna er kölluð 20/20 og tekur mið af þeirri hjá ESB.

Í þessari stefnumótunarvinnu er lögð áhersla á að virkja sem flesta til að koma með hugmyndir að lausnum og nýjum atvinnutækifærum.

Þessi stefna mun krefast þess að nauðsynlegt er að endurskoða okkar vinnubrögð í einu og öllu.

Hvernig ætlum við að standast samkeppnina og halda og bæta okkar lífskjör.

Markmiðið er að efla samkeppnishæfni landsins, gera sóknaráætlanir í atvinnumálum fyrir alla landshluta og samþætta opinberar áætlanir þannig að þær vinni allar saman.

Í þessari vinnu er fjöldi aðila virkjaður til þátttöku.

Með skýrri stefnu, framtíðarsýn og eflingu þeirra verkfæra sem við eigum er endurreisnin léttari.

Við þurfum að líta heildstætt á atvinnulífið og skoða hvernig við náum hér stöðugleika og trausti.

Atvinnu- og efnahagslíf sem einkennist ekki af sífelldum sveiflum öfga á milli svo langtímahugsun og skýr stefnumótun geti notið sín.

Mitt mat er að mannauðsvirkjanir, skipulag og styrkari áætlanir, betri tengingar mennta- og atvinnulífs og markviss alþjóðleg samskipti sé sú leið sem við þurfum að horfa til, til lengri og skemmri tíma. 

A.   Virkjanir/orka

       Rammaáætlun

       Verkefnafjármagn

       Búðarháls og NA land

B.   Ný tegund starfa

       Orkusk.

       Gagnaver

       Minni gr. Framleiðsla

       Eftirvinnsla

       Uppbygging ferðamannastaða

C.   Nýsköpun/Sprotar

       Nýsköpunarlög

       Tækniþróunarsjóður

D.  Orku- og umhv.tækni ESB og USA 

Við lausn svona verkefna er gífurlega mikilvægt að hafa samstillta og vel þjálfaða áhöfn við að leysa erfið verkefni. 

Þegar við lítum til atvinnulífsins í heild, undirstöðu verðmætasköpunar og velferðar okkar, er mikilvægasta verkefni stjórnvalda án efa að fylgja áætluninni um endurreisn efnahagslífsins, leggja grunn að stöðugleika og skapa hagstætt umhverfi fyrir atvinnulífið.

Hlutverk hins opinbera er ekki að koma sjálft með lausnirnar heldur að skapa jarðveg og stuðningsumhverfi.

Menn mega ekki falla í þá gryfju að bíða þangað til að annar leysi vandann. Ekkert eitt leysir vandann.

Við þurfum að virkja frumkvöðlaandann og styðja við sköpunarkraft fólks.

Ég hef fylgst með þessari keppni og finnst því gaman að fá að vera með ykkur hér í dag og ég vil leyfa mér að skjóta þeirra hugmynd að ykkur að útvíkka hönnunarkeppni sem þessa og etja t.d. saman fyrirtækjum við úrlausn praktískra verkefna.

En þið eigið spennandi keppni framundan hér í dag.

Gangi ykkur vel og njótið dagsins.

Ráðherra setur Hönnunarkeppni HÍ

 

 

 

 

 

 

Ráðherra setur Hönnunarkeppni HÍ

 





Stoðval