Formennska Íslands

Formennska Íslands í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2009

Norrænu ríkin skiptast á um að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og leiða starfsemina eitt ár í senn. Á árinu 2009 kemur það í hlut Íslendinga að gegna formennsku í nefndinni. Geir H. Haarde kynnti áherslumál Íslendinga á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki 28. október. Yfirskrift áætlunarinnar er Norrænn áttaviti. Í fjórum undirköflum er gerð grein fyrir helstu áherslumálum, en rauður þráður er að stórefla skal rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði orku- og umhverfismála. Þá er verndun hafsins eitt af megináherslumálunum, svo og gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið. Það kemur líka í hlut Íslendinga að fylgja eftir svokallaðri hnattvæðingarstefnu norrænu forsætisráðherranna, sem kynnt var sumarið 2007.
Sjá pdf-útgáfu af formennskuáætluninni í heild sinni.

Norræna ráðherranefndin er samsett úr 10 ráðherranefndum fagráðherra. Hún ber ábyrgð á norrænum rannsóknarverkefnum, stofnunum, starfsemi norrænu upplýsingaskrifstofanna, alþjóðlegum samningum og sáttmálum.

Sjá bækling um Norrænu ráðherranefndina

Íslendingar gegndu síðast formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2004 undir yfirskriftinni Auðlindir Norðurlanda.

Formennskuáætlun í ráðherraráðinu fyrir atvinnu-, orku- og byggðamál

Islands formandskapsprogram for Ministerrådet for næring, energi og regionalpolitik

 





Stoðval