Starfssvið
Starfssvið iðnaðarráðuneytis
Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta fer iðnaðarráðuneyti með mál er varða:
A. Atvinnuþróun og nýsköpun, þar á meðal:
1. Stuðningsþjónustu við frumkvöðla og sprota- og nýsköpunarfyrirtæki.
2. Tæknirannsóknir og þróun.
3. Starfrækslu frumkvöðlasetra.
4. Fjármögnun nýsköpunarverkefna.
5. Ívilnanir vegna nýfjárfestinga og gerð fjárfestingarsamninga.
6. Opinberar fjárfestingar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.
7. Staðla.
8. Atvinnuþróunarfélög.
B. Byggðamál, þar á meðal:
1. Lánastarfsemi til atvinnulífs á landsbyggðinni.
2. Gagnasöfnun og rannsóknir um byggðaþróun.
3. Byggðaáætlun.
C. Ferðaþjónustu, þar á meðal:
1. Mörkun ferðamálastefnu.
2. Ferðamálaráð.
3. Þróunar-, gæða- og skipulagsmál.
4. Úrbætur og uppbygging á ferðamannastöðum.
5. Samninga um ferðamál.
D. Hitaveitur, þar á meðal:
1. Gjaldskrár og reglugerðir hitaveitna.
2. Stofnstyrki til tryggingar nýrra hitaveitna.
E. Iðnað, þar á meðal:
1. Orkufrekan iðnað, þ.m.t. forræði á eldri fjárfestingarsamningum vegna stóriðju.
2. Handiðnað.
3. Verksmiðjuiðnað.
4. Starfsréttindi í iðnaði.
5. Löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.
6. Visthönnun vöru sem notar orku.
7. Endurgreiðslur gna kvikmyndagerðar.
8. Tilnefningu og formennsku í úthlutunarnefnd losunarheimilda.
F. Jarðrænar auðlindir, þar á meðal:
1. Leit, rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu og á, í eða undir hafsbotni.
2. Leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíuleit).
3. Vatnalög.
G. Orkumál, þar á meðal:
1. Rannsóknir á orkulindum.
2. Umsjón með raforkumarkaði og starfsemi orkufyrirtækja.
Stefna
