Allar nefndir

Samstarf hagsmunaaðila fjölgun flugfélaga til Íslands

Iðnaðarráðuneytið tekur undir þau sjónarmið Keflavíkurflugvallar ohf. að íslensk ferðaþjónusta þurfi að koma miklu sterkar að markaðssetningu flugvallarins eins og gerist í helstu samkeppnislöndum. Mikilvægt sé að geta boðið heildstæða pakka á helstu kaupstefnum sem flugvallaryfirvöld sækja og skilgreina hvaða þjónustu hægt sé að bjóða þeim flugfélögum sem áhuga hafa á að hefja flug hingað til lands og hvað Ísland hafi upp á að bjóða sem áfangastaður ferðafólks.

Til að gera tillögur varðandi þetta verkefni hefur verið ákveðið að setja á laggirnar starfshóp til að móta aðkomu ferðaþjónustunnar að þessu verkefni og eru Sunna Þórðardóttir starfsmaður starfshóps iðnaðarráðuneytis um samstarf hins opinbera og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu um kynningu á Íslandi sem kosti fyrir fleiri aðila að hefja flug hingað til lands.Formaður hópsins er Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri. Aðrir í hópnum eru Guðný María Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar ohf., María Reynisdóttir fulltrúi Höfuðborgarstofu, Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri tilnefndur af SAF og Sunna Þórðardóttir starfsmaður hópsins.

Gert er ráð fyrir að hópurinn móti tillögu fyrir 1. maí n.k. sem nýst getur þegar á kaupstefnunni Routes Europe sem haldin er í maí n.k. Hópurinn mun síðan skila mótaðri tillögu til iðnaðarráðherra um það hvernig þessu samstarfi skuli háttað og hvernig best skuli staðið að aðkomu hagsmunaaðila að fjármögnun þess fyrir 1. október n.k.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica