Samningbundnar stjórnir og nefndir
Fjárfestingarstofan - stjórn 2009 - 2011
Vísað er til samnings viðskiptaráðuneytis (nú iðnaðarráðuneytis) og Útflutningsráðs Íslands, dags. 8. desember 2004, um verkefni og rekstur Fjárfestingastofu (Investi in Iceland Agency) innan Útflutningsráðs Íslands.
Skv. 2. gr. samningsins skal sérstök verkefnisstjórn móta starf Fjárfestingastofunnar, marka stefnu hennar og ákveða tilhögun starfsins. Verkefnisstjórnina skipa þrír menn. Einn skipaður af Útflutningsráði Íslands og tveir af ráðuneytinu og er annar þeirra formaður verkefnisstjórnar. Verkefnisstjórn skal skipuð til tveggja ára í senn.
Iðnaðarráðuneyutið hefur ákveðið að fulltrúar þess næstu tvö árin, eða þar til samið verður um annað, verði:
Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri iðnaðarráðuneyti
Einar Karl Haraldsson aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, formaður verkefnastjórnarinnar.
