Skrifstofa orkumála

Skrifstofa orkumála fer með málefni er lúta að orku þar á meðal grunnrannsóknum á orkulindum, nýting orku og orkufyrirtæki. Þá fer skrifstofan með málefni tengd jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni. Auk þessa fer skrifstofan með málefni varðandi niðurgreiðslur, stofnstyrki hitaveitna og jarðhitaleit. Málefni Orkustofnunar, Íslenskra orkurannsókna og Orkusjóðs falla undir skrifstofuna. Auk þess erlend samskipti á sviði orku- og auðlindamála.

Málaflokkar

  • Stefnumótun í auðlinda- og orkumálum
  • Leyfi til rannsókna á auðlindum í jörðu innan netlaga
  • Leyfi til nýtingar á auðlindum í jörðu innan netlaga
  • Leyfi til að leita að auðlindum á, í eða undir hafsbotni utan netlaga
  • Leyfi til nýtingar á auðlindum á, í eða undir hagsbotni utan netlaga
  • Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma
  • Olíuleit
  • Virkjunarleyfi
  • Háspennulínuleyfi
  • Dreifingarleyfi
  • Raforkuviðskiptaleyfi
  • Raforkuskýrsla
  • Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku
  • Staðfesting reglugerða hitaveitna
  • Staðfesting á gjaldskrám hitaveitna
  • Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar
  • Stofnstyrkir nýrra hitaveitna
  • Jarðhitaleit
  • Merkingar og upplýsingaskylda um orkunotkun heimilistækja o.fl.
  • Orkunýtnikröfur
  • CIP (Intelligent Energy Europe)
  • Samstarfssamningar um orkumál

Senda grein



Orka

Þetta vefsvæði byggir á Eplica