Beint í leiðarkerfi vefsins.
Vatnalaganefnd hefur lokið athugun sinni á nýjum vatnalögum nr. 20/2006 og er einhuga um að leggja til að gildistöku laganna verði frestað meðan unnið verði að breytingum á þeim. Nefndin setur fram tillögur að breytingum í fjórum tölusettum liðum og leggur jafnframt til að þær verði unnar samhliða innleiðingu vatnatilskipunar ESB í íslenskan rétt. Nefndin hefur skilað tillögum sínum til iðnaðarráðherra, ásamt ítarlegri skýrslu um vatnsréttindi og vatnalöggjöf (Bók 215 síður).
Nefnd sem iðnaðarráðherra skipaði um miðjan febrúar 2008 til að fjalla um skipulag og fjármögnun ferðaþjónustu hefur skilað tillögum sínum. Tillögurnar eru mikilvægur þáttur í endurskoðun á ferðamálaáætlun og framtíðarskipan málaflokksins eftir flutning hans til iðnaðarráðuneytis.
Lesa meira