Skýrsla iðnaðarráðherra um raforkumálefni

28.2.2006

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra mælti fyrir skýrslu sinni um raforkumálefni á Alþingi mánudaginn 20. febrúar 2006.

Í skýrslunni er leitast við að veita ítarlegar upplýsingar um þróun raforkumála hérlendis, í samræmi við ákvæði 39. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, um upplýsingagjöf iðnaðarráðherra til Alþingis um raforkumálefni.

Skýrslan skiptist í eftirfarandi sjö kafla:

1. Skipulag raforkumála á Íslandi

2. Þróun raforkuverðs og breytingar um áramótin 2004/2005

3. Sala og notkun raforku

4. Raforkuþörf og öryggi raforkukerfisins

5. Gæði raforku og afhendingaröryggi

6. Rannsóknir á orkulindum og undirbúningur á virkjun þeirra til raforkuvinnslu

7. Þjóðhagsleg þýðing framkvæmda á sviði raforkumála

Skýrsla iðnaðarráðherra um raforkumálefni, pdf-skjal (574 Kb)



 







Stoðval