Skýrslur

Skýrsla um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum 2005

Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttis hefur gefið út skýrslu um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum fyrir árið 2005

31.5.2006

Skýrsla um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum á Íslandin 2005

Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst hefur birt upplýsingar um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum (miðað við veltu) hér á landi fyrir árið 2005. Konur skipuðu aðeins 12% stjórnarsæta og 10,5% æðstu stjórnenda fyrirtækjanna voru konur. Birting upplýsinga um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum er liður í verkefninu Jafnréttiskennitalan, en samstarfsaðilar verkefnisins eru Viðskiptaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.

Á lista sem birtur er á heimasíðu Rannsóknasetursins kemur fram að: Konur skipuðu 12% stjórnarsætanna (51 af 434 stjórnarsætum).
Konur voru 10,5% yfirmanna fyrirtækjanna (43 konur af 410 forstjórum og framkvæmdastjórum).
39% fyrirtækjanna voru með skriflega jafnréttisáætlun, en 61% fyrirtækjanna höfðu enga slíka áætlun. Engin kona var í stjórn 55% fyrirtækjanna
Fimm konur voru stjórnarformenn í fyrirtækjunum, þ.e. um 5 % stjórnarformanna.
Fimm fyrirtæki voru með konur í 50% stjórnarsæta eða meira, þ.e. um 5% fyrirtækjanna.
Þetta eru Íslensk-ameríska verslunarfélagið ehf., Fasteignafélagið Stoðir hf., Bílabúð Benna ehf., Eykt ehf. og Þ.G. verktakar ehf. Konur gegndu stjórnarformennsku í tveimur þessara fyrirtækja. Konur voru í tæplega 6% stjórnarsæta af þeim fyrirtækjum á listanum sem skráð eru á Aðallista Kauphallar Íslands, þar af gegndi ein kona stjórnarformennsku.

Skýrsla um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjum á Íslandi 2005

 







Stoðval