Skýrslur
Skýrsla um olíuleit á Drekasvæði við Jan Mayen-hrygg
Iðnaðarráðuneytið hefur lagt fram til umsagnar skýrslu með tillögu að áætlun um útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á norðanverðu Drekasvæði við Jan Mayen-hrygginn, ásamt drögum að umhverfismati þeirrar áætlunar í samræmi við lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana. Umhverfismatið tekur til hugsanlegra áhrifa helstu framkvæmdaþátta olíuleitaráætlunarinnar á umhverfið.
Samkvæmt tillögunni felur áætlunin í sér að gefin verði út sérleyfi til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á norðanverðu Drekasvæðinu, eða á vænlegustu svæðum innan þess. Niðurstöður hljóðendurvarpsmælinga og annarra jarðeðlisfræðilegra mælinga sem unnar hafa verið á svæðinu gefa vísbendingar um að olíu og gas í vinnanlegu magni geti verið að finna þar. Frekari rannsóknir, þar á meðal rannsóknarboranir, þarf hins vegar til að sannreyna hvort olíu eða gas sé að finna á svæðinu.
- Skýrslan
- Fylgiskjöl með skýrslunni
- Frétt um útgáfu skýrslunnar