General Motors hélt kynningarfund hér á landi 15. maí s.l. um nýtingu vetnis og komu hingað af því tilefni um 20 erlendir blaðamenn.

18.5.2006

Fyrirtækið hefur lýst því yfir að það sé markmið þeirra að framleiða vetnisbíla eftir 5-7 ár sem verði samkeppnishæfir við hefðbundna bíla í gæðum, drægni, líftíma og kostnaði. Hjá GM eru menn sannfærðir um að ef eftirspurn verði nægjanleg til að fjöldaframleiða vetnisbíla verði hægt að framleiða vetnisbíla árið 2010 sem að fullu verði samkeppnishæfir á öllum sviðum við hefðbundna bíla. Til að svo geti orðið þarf að auka við vetnisdreifikerfi á lykilkjarnasvæðum. Ísland getur orðið eitt slíkra svæða.

Á fundinum voru kynntir þeir  möguleikar sem bjóðast til vetnisvinnslu á mismunandi stöðum í heiminum og mönnum boðið að skoða hvað Íslendingar eru að gera varðandi nýtingu jarðhita og vinnslu vetnis með raforku frá jarðvarmavirkjunum. Íslensk NýOrka ásamt samstarfsaðilum hefur unnið að fjölbreyttum rannsóknar- og sýniverkefnum um nýtingu vetnis og er enginn vafi  á því að frumkvæði Íslendinga í tilraunum við að nýta vetni í almenningssamgöngum hefur vakið mikla athygli erlendis.

 

GM fer lofsamlegum orðum um stefnu stjórnvalda á Íslandi við að nýta innlenda vistvæna orkugjafa og nýtingu .þeirra til vetnisframleiðslu. Hvergi í heiminum eru jafn góðar aðstæður til að tengja saman endurnýjanlega orku og  vetnisvinnslu eins og í samfélaginu á Íslandi. Stefna GM er að mynda tengslanet við fyrirtæki og stjórnvöld og með það að leiðarljósi er fyrirtækið nú að heimsækja Ísland. Samhliða kynningunni sýndi General Motors hér nýjustu tegundina af vetnisbíl fyrirtækisisns, HydroGen3.

 

Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, flutti ávarp á kynningarfundinum.  Ávarpið er á ensku.



 

Fréttir eftir árum...








Stoðval